13. nóvember 2006 klukkan 02:04
ég vil byrja þessa færslu á því að óska honum pabba mínum til hamingju með daginn, þar sem að í dag er fyrsti feðradagurinn :)
en já, það er sunnudagur og ég er í tölvunni niðrí íþróttahúsi.. talvan heima er hér með ÓNÝT! skjárinn er brotinn eða eitthvað.. en strákarnir eru í kvörfubolta og ég ætla að afreka það að sitja í heitapottinum á meðan ;).. en helgin var eins og hér segir..
föstudagur: ég vaknaði kl 8 og gerði mig til fyrir vinnuna.. en vegna veðurs var enginn skóli.. ég varð þá svolítið vonsvikið því að ég gat ómögulega sofnað aftur.. en svo mætti ég og þreif klefanna í 2 tíma :D obboslega dulleg ;) en svo var farið í borgarnes í ljós og svo í klippingu og strýpur.. og VÁ!! ég er ljóshærð ;) og ég er æðislega ánægð með það ! mér finnst ég voða sæt ;) tíhí

en svo um kvöldið fórum við á rúntinn með hjalta, gumma ó og konunni hans helgu! við ætluðum að fara í partý í munaðarnesi.. og við fórum í munaðarnes.. en við tókum okkar tíma að fara í partýið.. þar sem að við rúntuðum um svæðið í snjó og hálku í örugglega 1 eða 2 tíma! þar var keyrt á tré.! létum agnesi keyra útaf (hún lifið af og komst sjálf upp á veg! þetta var nú ekkert svakalegt) og já þetta var mjög gaman.. og krakkar.. sorrý með öskrin.. ég er bara doldið hrædd í bíl með honum hjalta

en svo fórum við í partýið og það var bara mjög fínt! þekkti mjög fáa þarna.. en mér voru gefnir 2 ískaldir carlsberg.. mmm þeir voru góðir! en við fórum nú snemma heim.. eða um 12 leitið!
laugardagur: ég vaknaði eins og allar helgar allt of snemma eða milli 10 og 11.. og ég held að ég hafi ekki gert neitt merkilegt um daginn.. en svo um kvöldið fórum við ásgeir á árshátí hjá sólfell (fyrirtækið hans Ásgeirs) þar fengum við góða súpu, skrýtið kjöt og ótrúlega góða eplaköku

mmm hvað hún var góð.. svo var alveg snilldar skemmtiatriði! grét næstum úr mér augun úr hlátri! þetta tengdist geimskutlu og nælonokkum ;) en svo var allt þetta ókunna fólk orðið drukkið og ég hætt að fíla mig !! mér bara líður ekkert vel í kringum fólk sem að ég þekki ekki baun! þannig að ég lét lítið fyrir mér fara og beið eftir að allir voru reknir út ;)
fyrst keyrðum við blindfullan sveitung heim til sín og svo fórum við aftur uppí munaðarnes þar sem að partýið átti að vera mun betra en á föstudeginum! en ein manneskja sá um að það myndi ekki gerast! það var einhver offitusjúklingur með tattú sem að hélt að hann ætti heiminn og þetta partý! (en hann var bara enn einn gesturinn) hann reyndi að drepa nokkrar manneskjur með augnráðinu sínu og bendingum!! ÞETTA PARTÝ ER DAUTT öskraði hann og þá dó partýið!! svo fór fólk að rífast og þetta var svaka drama.. mjög leiðinlegt partý.. sérstaklega fyrir mig, edrú manneskju! þannig að ég hélt bara áfram að bíða eftir að hinir nenntu að fara heim.. og það varð ekki fyrr en um 2 eða hálf 3..
en þetta kvöld var ágætt.. ég fékk að klæða mig fínt og gera mig sæta! (hef ekki getað klætt mig fínt í langan tíma án þess að þurfa að fela lappir og hendur vegna exems!! en nú blastaði maður kálfunum og handleggjunum ;) hehehehe.. djók!
sunnudagur: við vöknuðum rúmlega tvö!!! já það var mjög gott! og svo fékk ég afmælisgjöf frá henni Rebekku (mömmu Ásgeirs) og hún gaf mér ótrúlega sæt bleik náttföt og klikkað töff mittisbelti :) TAKK

og svo var bara legið í leti... og nú er ég hérna í íþróttahúsinu í nýju sætu náttfötunum mínum á leiðinni í pottinn :D pabbi kemur svo á eftir til að ná í bílinn minn til að fara með hann á verkstæði :) já þetta er besti pabbi í heimi :*
en vó! nú eruð þið örugglega búin að sitja í klukkutíma fyrir framan skjáin að reyna að komast í gegnum þessa færslu þannig að ég er HÆTT... í bili ;)
hehe.. ég varð að bæta þessari mynd við.. algjör snilld!! þessi ybbar ekki gogg aftur ;)